Henrik Íslandsmeistari – Bragi og Jón Viktor í 2.-3. sæti – Guðmundur enn í áfangasénsum

0
930

Eins og áður hefur komið fram er Henrik Danielsen Íslandsmeistari í skák.  Henrik hefur 8 vinninga að lokinni 10. og næstsíðustu umferð sem fram fór í kvöld.  Í 2.-3. sæti eru Bragi Þorfinnsson og Jón Viktor Gunnarsson með 6½ vinning.  Bragi gerði jafntefli við Þröst Þórhallsson en Jón Viktor vann Róbert Lagerman.  Þröstur og Guðmundur Gíslason eru í 4.-5. sæti með 6 vinninga.  Guðmundur getur náð áfanga af alþjóðlegum meistaratitli en til þess þarf hann að vinna Braga í lokaumferðinni sem fram fer á morgun og hefst kl. 13.

Í lokaumferðinni mætast m.a.: Þröstur – Henrik, Guðmundur Gíslason – Bragi og Jón Viktor – Magnús Pálmi Örnólfsson.

Úrslit 10. umferðar:

Ornolfsson Magnus P ½ – ½ Johannesson Ingvar Thor
Olafsson David 0 – 1 Gislason Gudmundur
Thorfinnsson Bragi ½ – ½ Thorhallsson Throstur
Danielsen Henrik ½ – ½ Kjartansson Gudmundur
Arngrimsson Dagur 1 – 0 Bjornsson Sigurbjorn
Lagerman Robert 0 – 1 Gunnarsson Jon Viktor

 

Staðan:

Rk. Name Rtg Club/City Pts. Rp rtg+/-
1 GM Danielsen Henrik 2473 Haukar 8 2588 13,4
2 IM Thorfinnsson Bragi 2360 Bol 6,5 2478 16,0
3 IM Gunnarsson Jon Viktor 2462 Bol 6,5 2481 2,7
4 GM Thorhallsson Throstur 2433 Bol 6 2420 -1,4
5 Gislason Gudmundur 2348 Bol 6 2440 19,4
6 FM Bjornsson Sigurbjorn 2287 Hellir 5 2375 17,7
7 IM Arngrimsson Dagur 2396 Bol 4,5 2322 -10,2
8 FM Johannesson Ingvar Thor 2323 Hellir 4 2302 -4,8
9 FM Kjartansson Gudmundur 2413 TR 4 2286 -17,4
10 FM Olafsson David 2327 Hellir 3,5 2264 -12,9
11 FM Lagerman Robert 2351 Hellir 3,5 2265 -17,4
12 Ornolfsson Magnus P 2214 Bol 2,5 2178 -6,6


Röðun 11. umferðar (föstudagur kl. 11):

Gunnarsson Jon Viktor Ornolfsson Magnus P
Bjornsson Sigurbjorn Lagerman Robert
Kjartansson Gudmundur Arngrimsson Dagur
Thorhallsson Throstur Danielsen Henrik
Gislason Gudmundur Thorfinnsson Bragi
Johannesson Ingvar Thor Olafsson David

Teflt er í Ráðhússalnum.  Skákir mótsins eru sýndar beint á vef Skáksambands Íslands.    Það er Taflfélag Bolungarvíkur sem heldur mótið.