Henrik Danielsen, úr Skákdeild Hauka, er Íslandsmeistari í skák.  Henrik gerði stutt jafntefli við Guðmund Kjartansson í 10. og næstsíðustu umferð á Íslandsmótinu í skák en á sama tíma gerði helst andstæðingur hans, Bragi Þorfinnsson, jafntefli við Þröst Þórhallsson.  Þar með er ljóst að Henrik hefur 1½ vinnings forystu fyrir lokaumferðina og hefur því þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn!Teflt er í Ráðhússalnum.  Skákir mótsins eru sýndar beint á vef Skáksambands Íslands.    Það er Taflfélag Bolungarvíkur sem heldur mótið.