Íslandsmótinu í skák er lokið. Eins og fram hefur komið fyrr í dag varð Hannes Hlífar Stefánsson Íslandsmeistari í ellefta sinn en hann hlaut 8,5 vinning í 10 skákum. Annar varð Björn Þorfinnsson með 8 vinninga en þetta er hans langbesti árangur á Íslandsmóti hingað til. Stefán Kristjánsson varð þriðji með 7 vinninga og Guðmundur Gíslason og Bragi Þorfinnsson urðu í 4.-5. sæti með 6,5 vinning en þessir fimm skákmenn voru í sérflokki á mótinu.
Lokahóf hefst kl. 18.15 og er allir keppendur hvattir til að fjölmenna. Um kvöldið eru skákáhugamenn boðnir velkomnir í sportbarinn Gullöldina, Hverafold 5 í Grafarvogi.
Úrslit 11. umferðar:
| Thorfinnsson Bjorn | 1 – 0 | Omarsson Dadi |
| Stefansson Hannes | 1 – 0 | Gislason Gudmundur |
| Olafsson Thorvardur | 0 – 1 | Thorfinnsson Bragi |
| Lagerman Robert | 0 – 1 | Thorhallsson Throstur |
| Thorgeirsson Sverrir | ½ – ½ | Johannesson Ingvar Thor |
Stefán Kristjánsson sat yfir.
Lokastaðan:
| Rk. | Name | Rtg | Club/City | Pts. | Rp | rtg+/- | |
| 1 | GM | Stefansson Hannes | 2574 | Hellir | 8,5 | 2539 | 8,2 |
| 2 | IM | Thorfinnsson Bjorn | 2376 | Hellir | 8 | 2521 | 20,9 |
| 3 | IM | Kristjansson Stefan | 2466 | Bolungarvík | 7 | 2481 | 2,4 |
| 4 | Gislason Gudmundur | 2382 | Bolungarvik | 6,5 | 2452 | 15,1 | |
| 5 | IM | Thorfinnsson Bragi | 2396 | Bolungarvík | 6,5 | 2451 | 8 |
| 6 | FM | Johannesson Ingvar Thor | 2343 | Hellir | 4 | 2274 | -14,3 |
| 7 | Thorgeirsson Sverrir | 2177 | Haukar | 3,5 | 2231 | 22,8 | |
| 8 | GM | Thorhallsson Throstur | 2407 | Bolungarvík | 3,5 | 2229 | -23,5 |
| 9 | Olafsson Thorvardur | 2206 | Haukar | 3,5 | 2229 | 9,4 | |
| 10 | FM | Lagerman Robert | 2347 | Hellir | 2,5 | 2152 | -37,7 |
| 11 | Omarsson Dadi | 2127 | TR | 1,5 | 2083 | -8,3 |








