Guðmundur Kjartansson í Hörpu. Mynd: Hrafn Jökulsson.

Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2434) tekur sæti Hjörvars Steins Grétarssonar í ólympíuliði Íslands. Helgi Ólafsson tilkynnti ákvörðun sína núna í morgun í bréfi til landsliðsnefndar SÍ.

Þar sem Hjörvar Steinn Grétarsson hefur ákveðið að draga sig út úr liði Íslands sem teflir í opna flokki Ólympíumótsins í Batumi í Georgíu liggur fyrir að velja þarf mann í hans stað.  Ég hef ákveðið að Guðmundur Kjartansson taki sæti Hjörvars. Tilkynnt verður um borðaröð síðar. Liðsmenn Íslands eftir þessa breytingu eru því þessir:

Héðinn Steingrímsson,

Jóhann Hjartarson,

Hannes Hlífar Stefánsson,

Helgi Áss Grétarsson, 

Guðmundur Kjartansson.

Virðingarfyllst,

Helgi Ólafsson liðsstjóri.  

- Auglýsing -