Vel gekk íslensku krökkunum í fjórðu umferð EM ungmenna sem fram fór í Riga í Lettlandi í gær. Alls komu 3½ vinningur í hús hjá keppendunum fimm. Besta umferðin hingað til.

Arnar Milutin Heiðarsson (1749), sem teflir í flokki 16 ára og yngri, Gunnar Erik Guðmundsson (1579), sem teflir í flokki 12 ára og yngri, og Anna Katarina Thoroddsen (1081), sem teflir í flokki stúlkna 10 ára og yngri unnu öll.

Vignir Vatnar Stefánsson (2260), sem teflir í flokki 16 ára og yngri, gerði öruggt jafntefli gegn Rússanum Tagir Salemgareev (2375). Vignir hefur 3½ vinning og er í 2.-7. sæti. Í dag teflir hann við ítalska alþjóðlega meistarann Francesco Sonis (2468), stigahæsta keppenda flokksins.

Gunnar Erik hefur 2 vinninga, Anna Katarina og Arnar Milutin hafa 1 vinning en Soffía Arndís Berndsen, sem teflir einnig í flokki stúlkna 10 ára og yngri, er ekki komin á blað.

Upplýsingar um árangur íslensku keppendanna má finna á Chess-Results.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (kl. 12:15)















