FIDE-þingið hófst í dag í Batumi í Georgíu en fyrst eru á dagskrá FIDE-þinga eru nefndarfundir sem eru opnir öllum. Á fundi hæfnisnefndar (qualification commission) var tekin fyrir tillaga Skáksambands Íslands um að Fischer-slembiskákar skákstig verði reiknuð. Er óhætt að segja að vel hafi verið tekið í tillöguna og meðal annars töluðu Susan Polgar og Nigel Short, sem eru nú ekki þekkt fyrir það að vera sammála, fyrir tillögunni. Enginn talaði á móti.
Til að byrja með verða ein Fischer-stig reiknuð með lágmarkstíma og voru þá bæði 10 eða 15 mínútur nefndar.

Það voru helst forystumenn nefndarinnar sjálfar sem vildu stiga varlega til jarðar og hægja á ferlinu. Niðurstaða fundarins var sú að safna gögnum um fjölda slíkra móta og hefja útreikning eins og fljótt og auðið er.
















