Íslenska liðið í opna flokknum kom aðeins niður á jörðina með ósigri gegn Ísrael eftir frábæra byrjun.
Íslenska liðið mun reyna að rétta úr kútnum gegn frændum okkar frá Noregi í 4. umferðinni. Norðmenn eru númer 38 í stigaröð á meðan við erum númer 44. Magnus Carlsen er ekki með Norðmönnum frekar en Jon Ludvig Hammer sem gefur okkur betri séns en ella á að leggja þá að velli.
Ísland hefur mætt Norðmönnum 14 sinnum á Ólympíumótum og standa sveitirnar nokkuð jafnt og er Ísland með 18 sigra, 19 jafntefli og 19 töp. Gæti nánast varla verið jafnara. Við höfum þó ekki mætt Norðmönnum síðan 1994.
Íslenska kvennasveitin fær sterka og jafna sveit Kúbverja og verður róðurinn þungur. Íslenska sveitin vann nauman sigur í gær gegn IPCA, sambandi fatlaðra, og verður gaman að sjá hvort þær ná að fylgja því eftir í dag. Ljóst er þó að róðurinn verður erfiður. Ísland hefur mætt Kúbu einu sinni áður á ÓL og var undirritaður þá einmitt liðsstjóri í 0.5-3.5 tapi gegn þessari sterku sveit.
Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 4.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur