
Stórmeistarinn, Helgi Ólafsson (2510), gerði jafntefli við indverska stórmeistarann Baskaran Adhiban (2668) í 2. umferð alþjóðlega mótsins á eyjunni Mön sem tefld var í gær. Prýðisárangur hjá Helga sem hefur 1½ vinning. Í dag mætir hann ungverska stórmeistaranum Peter Leko (2690) og hefur hvítt.
Hinir íslensku keppendurnir í efsta flokki töpuðu. Allir fyrir töluvert andstæðingum. Enda er Mön hart mót – ekkert Andorra.
Þriðja umferð hefst í dag kl. 13:30. Gauti Páll Jónsson (2073) og Dagur Ragnarsson (2251) mætast.
Það er einnig teflt í tveimur öðrum flokkum. Major og Minor. Þar tefla einnig Íslendingar. Taflmennskan þar hefst í dag.
- Auglýsing -













