Stórmeistarinn, Helgi Ólafsson (2510), gerði jafntefli við ungverska stórmeistarann Peter Leko (2690) í 3. umferð Masters-flokksins á eyjunni Mön sem fram fór í gær. Helgi hefur byrjað vel á mótinu og hefur 2 vinninga.
Gauti Páll Jónsson (2073) og Dagur Ragnarsson (2251) gerðu jaftntefli í innbyrðis skák en Vignir Vatnar Stefánsson (2291) og Aron Þór Mai (2063) töpuðu sínum skákum.
Fjórða umferð fer fram í dag og tekur Helgi hálfsvinnings yfirsetu.
Major-flokkurinn hófst í gær. Þar tefla þrír Íslendingar. Stephan Briem (2038) og Alexander Oliver Mai (1995) unnu en Arnar Heiðarsson (1782) tapaði.
Það er einnig teflt í tveimur öðrum flokkum. Major og Minor. Þar tefla einnig Íslendingar. Taflmennskan þar hefst í dag.
- Auglýsing -
















