
Eftir smá hökt í upphafi Manar-mótsins komust íslensku ungmennin í gang í gær. Dagur Ragnarsson (2251) og Vignir Vatnar Stefánsson (2291) unnu sínar skákir. Aron Þór Mai (2063) og Gauti Páll Jónsson (2073) gerðu jafntefli. Sá síðarnefndi við enska alþjóðlega meistarann Robert Bellin (2326). Helgi Ólafsson (2510) tók hálfs vinnings yfirsetu í gær.
Fimmta umferð fer fram í dag og hefst kl. 13:30. Helgi teflir við enska stórmeistarann Michael Adams (2712). Vignir Vatnar mætir goðsögninni Piu Cramling (2465). Helgi verður í beinni.
Hálf vinnings yfirsetur eru leyfðar á húsinu og er athyglisvert að Kramnik (2779) og Anand (2771) feta í fótspor Helga og slíkar yfirsetur í dag sem og Robert Bellin sem er sennilega að jafna sig eftir jafnteflið gegn Gauta! 🙂
Í Major-flokknum unnu Stephan Briem (2038) og Arnar Heiðarsson (1782) sínar skákir en Alexander Oliver Mai (1995) tapaði. Stephan er einn þriggja keppenda með fullt hús eftir 2 umferðir.

















