Guðmundur Kjartansson

Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2423) endaði með 5 vinninga í 9 umferðum og endaði í 11.-13. sæti á alþjóðlega mótiu í Rúnavík í Færeyrjum sem fram fór 12.-18. nóvember.  Gummi náði sér á aldrei á strik á mótinu en sama mót vann hann í hitteðfyrra. Rússneski stórmeistarinn Vasily Papin (2483) sigraði á mótinu en hann hlaut 7 vinninga. Rógvi Egilstad Nielsen (2339) náði í sinn annan áfanga að alþjóðlegum meistaratitli með frammistöðu sinni.

28 skákmenn frá 10 löndum tóku þátt. Þar af voru 8 stórmeistarar.  Guðmundur var nr. 8 í stigaröð keppenda.

 

 

- Auglýsing -