Stórmeistarinn, Henrik Danielsen (2504), er meðal keppenda á heimsmeistaramóti öldunga, sem fram fer 18.-29. nóvember í Bled í Slóveníu. Henrik, sem teflir í flokki 50 ára og eldri, hefur byrjað afskaplega vel og eftir 6 umferðir er hann í 1.-5. sæti með 5 vinninga ásamt fjórum öðrum stórmeisturum. Í gær lagði hann að velli enska stórmeistarann Keith Arkell (2443) á lagegan hátt.
Árangur Henriks má sjá hér

Frídagur er í dag en mótinu verður framhaldið á morgun. Þá teflir Henrik við georgíska stórmeistarann Zurab Sturua (2529) sem er stigahæstur keppenda. Alls eru tefldar 11 umferðir svo það er nóg eftir!
106 keppendur frá 41 landi tekur þátt í flokki Henriks. Þar á meðal eru 10 stórmeistarar. Henrik er fjórði í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -
















