Jun Wenjun heimsmeistari kvenna. Mynd: Ugrachess.com

Ju Wenjun (2568) hélt heimsmeistaratitli kvenna eftir einvígi við Katarynu Lagno (2556) sem lauk í Khanty Mansiysk í Rússlandi í gær. Þær tefldu fyrst fjórar skákir með hefðbundum umhugsunartíma og var jafnt 2-2. Lagno vann aðra skákina en sú kínverska jafnaði metin í lokaskákinni.

Þá var teflt til þrautar með styttri umhugsunartíma og þar hafði sú kínverska betur 3-1 eða samtals 5-3.

Ju Wenjun er sú fyrsta í heiminum til að vera titil sitt eftir heimsbikarmót sem er útsláttarkeppni með 64 keppendum.

Arkady Dvorkovich, nýr forseti FIDE, hefur boðað breytingar á fyrirkomulagi mótsins, að það verði meira í líkingu við það sem er hjá körlunum. Núverandi fyrirkomulag hefur verið mjög gagnrýnt og tekur Hou Yifan t.d. ekki þátt á meðan núverandi fyrirkomulag er við lýði.

Nánar á Chess.com

- Auglýsing -