Það var þröng á þingi í dag þegar eldri skákmenn öttu þar kappi á jólahraðskákmóti ÁSA-FEB. Bragi Halldorsson varð efstur af 36 öldungum sjónarmun á undan Björgvini Víglundssyni með 11 vinninga af 13 mögulegum örlítið hærri að móts stigum.

Á ýmsu gekk og sumir ósáttari en aðrir með uppskeru sína þrátt fyrir hetjulega baráttu tafls í stöðum flóknum. Kaffi og konfekt bætti þó örlítið úr skák og milduðu geð guma. Sjá má heildarúrslit hér að meðan.

- Auglýsing -