Heimsmeistaramótið í at- og hraðskák hefst í dag í Sankti Pétursborg. Í dag hefst atskákin. Tefldar eru 15 umferðir, 5 umferðir á dag, með umhugsunartímanum 15+10. Hraðskákin fer fram 29. og 30. desember. Þar er tefld 21 umferð með umhugsunartímanum 3+2.
Langflestir sterkustu skákmenn heims taka þátt með heimsmeistarann Magnús Carlsen fremstan í flokki. Af 200 keppendum eru um 150 þeirra stórmeistarar!

Mótið ber nafnið „King Salman“ eftir konungi Sádi-Arabíu Mótið átti upphaflega að fara fram í Ryhad í Sádi Arabíu en mótið fór fært til Sankti Pétursborgar og eru keppendur frá öllum þjóðum velkomnir Áhrif Sádi Arabíu eru augljós og er svínakjöt og áfengi t.d. ekki boði á skákstað! Sumir Úkraínumenn, og má þar nefna Pavel Eljanov, sniðganga hins vegar mótið enda samskipti Rússa og Úkraínu a við frostmark.
Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með mótinu. Mótið er sýnt beint á NRK1. Heimasíða mótsins verður með beinar útsendingar á ensku. Chess24 er ávallt með afar vandaðar beinar útsendingar sem og Chess.com.
Nánar á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Chess-Results














