Sjö skákmenn eru efstir og jafnir með 7½ vinning eftir 10 umferðir á HM í atskák en í gær fóru fram umferðir 6-10. Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2903), er aðeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum þrátt fyrri afar köflótta taflmennsku í gær. Það veikir hins vegar stöðu heimsmeistarans að hann er afar lágur á mótsstigum (tie breaks) og mun væntanlega þurfa að vera einn efstur til að hampa heimsmeistaratitlinum.

Á toppnum eru fimm Rússar og tveir Kínverjar. Rússarnir eru Ian Nepomniachtci (2771), Dmitry Andreikin (2725), Vladislav Artemiev (2812), Daniil Dubov (2723) og Maxim Matlakov (2690) og Kínverjarnir eru Wang Hao (2782) og Yu Yangyi (2758).
Lokadagur mótsins verður í dag. Þá verða tefldar umferðir 11-15. Á morgun hefst svo HM í hraðskák.

Heimsmeistari kvenna, Jun Wenjun (2584) er efst í kvennaflokki með 7 vinninga eftir 8 umferðir. Maria Muzychuk (2493) er önnur með 6½ vinning. Í kvennaflokki eru tefldar 12 umferðir.

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með mótinu. Mótið er sýnt beint á NRK1/NRK2, þar sem megináhersla er lögð á heimsmeistarann.
Heimasíða mótsins er með prýðilegar beinar útsendingar á ensku. Chess24 er ávallt með afar vandaðar beinar útsendingar sem og Chess.com.
Nánar á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Chess-Results















