Á fimmtudaginn kemur 24. janúar, verður SKÁKDAGI ÍSLANDS þjófstartað á vikulegu skákmóti Korpúlfa, skákklúbbs eldri borgara í Grafarvogi og nágrenni, í félagsmiðstöðinni BORGUM gengt Spöng. Reyndar á Friðrik Ólafsson, stórmeistari, sem skákdagurinn er tileinkaður ekki afmæli fyrr en þann 26. janúar, en viðburðir tengdir honum dreifast nokkuð   bæði fyrir og eftir daginn sjálfan.

Hjá KORPÚLFUM verður nú teflt um FRIÐRIKSBIKARINN í þriðja sinn, farandgrip sem ESE gaf til keppninnar  og verðlaunapeninga með lágmynd meistarans.  Sæbjörn Larsen vann gripinn í fyrsta sinn sem um hann var keppt en Þór Valtýsson í fyrra. Góð þátttaka var í þessum mótum, hvort heldur menn eru Æsir eða Riddarar inn við beinið, þá lát menn sig ekki vanta.

Mótið hefst að þessu sinni kl. 12.30 og verða tefldar 11 umferðir með 10 minútna umhugsunartíma á skákina. Hlynur S. Þórðarson ásamt Þorsteini bróður hans eru skákstjórar.

Allir eldri skákmenn „sem tafllmanni geta valdið“ eru eindregið hvattir til að mæta og sýna snilli sína í tilefni dagsins þá sem endranær.

Fleiri skákviðburðir í tengslum við SKÁKDAGINN, munu fylgja á eftir hjá öðrum klúbbum.  Árdegismót KR að morgni sjálfs skákdagsins, laugardaginn 26 janúar,  verður að sjálfsögðu tileinkaðhonum sem og „Kappteflið um Friðrikskónginn“ VIII.  sem hefst hjá KR á mánudagskvöldið 28. janúar, 4 kvöld mótaröð.  Þriðjudaginn 29. janúar verður Skákdagsins einnig minnst í tengslum við  „Afmælismót Magga Pé “VII. hjá ÆSUM í Stangarhyl, sem og „TOYOTAMÓT eldri borgara  XII. í Kauptúni, Garðabæ, föstudaginn 1. febrúar.  Svo stendur RIDDARINN fyrir „Kappteflinu um Skákhörpuna“ 4 miðvikudaga í febrúar. Þessi mót verð nánar kynnt fljótlega.

Upplýsingar um dagskrá Skákdagsins má finna hér.

- Auglýsing -