Alþjóðlega mótið í Kragaeyju hófst í gær. Tólf íslenskir skákmenn taka þátt. Níu þeirra tefla í efsta flokki og níu í b-flokki.
Íslendingarnir byrjðu vel í gær enda tefldu þeir reyndar flestir við stigalægri andstæðinga.
Bragi Þorfinnsson (2438), Guðmundur Kjartansson (2403), Hilmir Freyr Heimisson (2394), Dagur Ragnarsson (2361), Vignir Vatnar Stefánsson (2263), Bárður Örn Birkisson (2233), Stefán Bergsson (2172) unnu allir sínar skákir.
Björn Hólm Birkisson (2078), Gauti Páll Jónsson (2070) og Björgvin S. Guðmundsson (1941) töpuðu hins vegar.
Þórður Guðmundsson (1548) vann sína skák í b-flokki en Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1740) tapaði.
Um er að ræða svokallað „Turbo-skákmót“. Tefldar eru tvær umferðir á dag næstu fjóra dagana.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (kl. 9 og 15)
- Auglýsing -














