íslandsmeistarar Hörðuvallaskóla. Mynd: BÍvarK

A-sveit Hörðuvallaskóla vann yfirburðasigur á Íslandsmóti grunnskólasveita í skák, sjötta skiptið í röð sem er Íslandsmet! Mótið fór fram Landakotsskóla, laugardaginn, 30. mars.

Sveitin hlaut 26 vinninga af 28 mögulegum eða tæp 93%. A-sveit Rimaskóla hafnaði í öðru sæti með 18½  vinning og A-sveit Laugalækjarskóla varð þriðja með 17 vinninga.

Sveit Hörðuvallaskóla var þannig skipuð að venju:  Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Arnar Milutin Heiðarsson, Sverrir Hákonarson og Óskar Hákonarson.
Liðsstjórar voru Gunnar Finnsson og Óskar Hákonarson.

Vignir, Stefán og Arnar fengu viðurkenningu fyrir besta árangur á fyrsta, öðru og þriðja borði en þeir unnu allar sínar skákir. Sverrir vann einnig allar skákir sínar en tefldi færri.

Fulltrúar Rimaskóla. Mynd: BÍK

Rimaskóli endaði í öðru sæti og Lauglækjarskóli varð í þriðja sæti.

C-sveit Laugalækjarskóla. Mynd: BÍK

B-sveit Hörðuvallaskóla, sigurvegarar í Íslandsmóti barnaskólasveita, tók þátt í grunnskólamótinu og lenti í 8.-9. sæti með 14 vinninga.

B-sveit Hörðuvallaskóla. Fjölskyldumynd? Mynd: BÍK

Laugarlækjaskóli hlaut verðlaun fyrir bestan árangur c-liða.

Fulltrúi c-lið Laugalækjarskóla ásamt liðssjtóra. Mynd: BÍK

Grunnskólinn í Hveragerði fékk verðlaun fyrir bestan árangur landsyggðarsveita

Fulltrúar Grunnskólans í Hveragerði. Mynd: BÍK

Lið Hörðuvallaskóla sem sigruðu á Íslandsmóti barnaskóla – og grunnskólasveita unnu sér þar með rétt til að tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í skólaskák sem fram fer í Svíþjóð í september.

Eftirtaldir hlutu borðaverðalun: Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Arnar Milutin Heiðarsson (allir Hörðuvallaskóla), Arnór Gunnlaugsson (Rimaskóla), Kirill Zolotuskiy (Landakotsskóla) og Markúr Orri (Háteigsskóla).

Borðaverðlaunahafar á mótinu. Mynd: BÍK

Lokastaðan á Chess-Results.

Skákstjórar voru Ingibjörg Edda Birgisdóttir og Róbert Lagerman. Landakotsskóli fær þakkir fyrir frábært samstar við mótshaldið.

Beðist er afsökunar á því hversu seint þessi frétt birtist. 

- Auglýsing -