Levon Aronian vann sigur á at- og hraðskákmótinu í St. Louis sem lauk í gærkveldi. Mótið er hluti af Grand Chess Tour. Armeninn fékk 22 stig af 36 mögulegum. Varð hálfu stigi fyrir ofan Yu Yangyi, Ding Liren og MVL. Tefldar voru 9 atskákir og 18 hraðskákir. Atskákirnar giltu tvöfalt.
Slök frammistaða heimsmeistarans, Magnúsar Carslen, vakti athygli en hann hlaut aðeins 17 stig og varð í sjöttu sæti tíu keppenda. Náði ekki 50% vinningshlutfalli.

Næst á dagskrá hjá elítunni er Sinquefield Cup mótið þar tefld verður kappskák Mótið er einnig hluti af Grand Chess Tour. Mótið hefst á laugardaginn. Keppendur þar: Magnus Carlsen, Hikaru Nakamura, Maxime Vachier-Lagrave, Fabiano Caruana, Shakhriyar Mamedyarov, Ian Nepomniachtchi, Anish Giri, Viswanathan Anand, Levon Aronian, Ding Liren, Sergey Karjakin og Wesley So
Nánar á Chess.com.















