Í gær fóru fram tvær umferðir á skákhátíðinni í Helsinki. Bragi Halldórsson (2116) sem teflir í öldungaflokki (+65) hlaut 1 vinning í skákum tveim en Hilmir Freyr Heimisson (2258) tapaði báðum. Hilmir reyndar tefldi reyndar við tvo stigahæstu keppendur mótsins í gær. Bragi hefur 2 vinninga en Hilmir hefur 1½ vinning að loknum fjórum umferðum.
Skákhátíðin fer fram dagana 14.-18. ágúst, Teflt er til heiðurs Heikki Westerinen sem fagnar 75 ára afmæli í ár og er meðal þátttakenda. Teflt er í þremur flokkum. Öldungaflokki (65+) og tveim ungmennaflokkum (u20). Um er að ræða túrbó-mót. Tefldar eru níu umferðir á fimm dögum.
Í dag eru tefldar 5. og 6. umferð og hefjast þær kl. 7 og 14.
Olomouch Chess Summer 2019
Lenka Ptácníková (2089) tekur þátt í alþjóðulegu móti níu umferða móti í Olomouch í Tékklandi dagana 10.-17. ágúst.
Lenka gerði jafntefli í sjöundu umferð sem fram fór í gær. Lenka hefur 4 vinninga. Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag.
Spilimbergo 2019 Open Masters
Daði Ómarsson (2252) tók þátt í alþjóðlegu móti í Ítalíu sem fram fór 9.-15. ágúst.
Daði hlaut 5 vinninga í umferðum níu. Hann missti af fyrstu umferð svo vinningana fimm fékk hann í átta skákum.
Frammistaða Daða var góð og samsvaraði 2380 skákstigum. Hann hækkaði um 27 skákstig fyrir hana.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (07:30 og 13:30)
Hennefer ELO Summer Open
Gauti Páll Jónsson (2057) er meðal keppenda á þessu fimm umferða móti sem hefst í dag og lýkur á sunnudaginn.
















