Í kvöld fer fram lokaumferð Sinquefield-mótsins í St. Louis. Ding Liren (2805) er efstur fyrir hana. Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2882) er meðal þeirra sem eru í í 2.-5. sæti með hálfum vinningi minna en Kínverjinn. Heimsmeistarinn vann Wesley So (2776) í gær eftir níu jafnteflisskákir í röð.
Ding teflir við Mamedyarov (2764) í kvöld en Norðmaðurinn mætir MVL (2778).
Staðan:
Nánari umfjöllun á Chess.com.
- Auglýsing -


















