
Ding Liren (2805) vann glæsilegan sigur á Magnúsi Carlsen (2882) í umspili þeirra á millum um sigurinn á Sinquefield-mótinu í gær. Þeir tefldu fyrst tvær atskákir (15+10) og gerðu jafntefli í báðum. Svo var tíminn styttur niður í 10+3. Þar féll Magnús á tíma í fyrri skákinni eftir að hafa þurft að hafa verulega fyrir hlutunum til að reyna að halda jöfnu.
Final moments of blitz game 1 pic.twitter.com/QlP3VTFO1s
— Grand Chess Tour (@GrandChessTour) August 29, 2019
Í síðari skákinni vann Ding glæsilegan sigur á Magnúsi. Skoðum tvö augnablik úr skákinni.
Svartur á leik
31…Bxe4! Má hann gera þetta vegna 32. g5? 32. g5 Ba8! Ding lék þessu samstundis. Hótunin er 33…Db7 og hvítur getur í besta falli sloppið með jafntefli eftir 33. gxf6 Db7 34. Kf1. Magnús þurfti hins vegar að vinna og lék 33. Dxa6. Skoðum svo lokin
Svartur á leik
40…Re7!! Stórglæsilegur leikur og um leið eini leikurinn sem tapar ekki. Hvítur á enga góða vörn við hótuninni 41…Hh1# og gafst upp.
Great performance by Ding Liren in St. Louis, with several excellent games. And beating mighty Magnus brilliantly in blitz, that is really earning the tournament victory! #GrandChessTour #SinquefieldCup https://t.co/NclV2BZhqJ
— Garry Kasparov (@Kasparov63) August 29, 2019
Fyrsta tap Magnúsar í umspili síðan 2007.
Shahade and Ashley wrongly says Carlsen *never* lost a playoff. That’s not correct. He lost against Aronian in the Candidates in 2007, Agdestein in the Norwegian Championship in 2005, against Bareev in World Cup 2005 and against Aronian in 2004 again. #SinquefieldCup https://t.co/dJsxLB6H5l
— Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) August 29, 2019
Nánari umfjöllun á Chess.com.












