Helgi Áss með sjálfu frá Krít. Áfram Helgi!

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412) vann gríska skákmanninn Alexandros Kotsinis (2007) í fimmtu umferð alþjóðlegs móts á Krít í gær. Helgi hefur 4 vinninga og er í 2.-7. sæti.

Í sjöttu umferð, sem hefst kl. 13, teflir Helgi við rússneska stórmeistarann Evgeny Levin (2502).

 

- Auglýsing -