Það var hart barist í tíundu og næstsíðustu umferð FIDE svissnesk-mótsins á Mön í gær. Fabiano Caruana (2812) Spánverjann David Anton (2674) á fyrsta borði og er einn efstur. Hann hefur hins vegar beinan keppnisrétt á næsta áskorendafmót sem síðasti áskorandi Magnúasar og því ljóst að einhver þeirra 2.-8. sæti fær sætið. Að Magnúsi Carlseni (2876) undanskildum – sem fær ekki keppnisrétt í móti um að keppa við sjálfan sig!
Wang Hao (2726) stendur best að vígi í baráttunni þar sem hann er með bestu oddastigin (meðalstig andstæðinga). Sigur dugar honum örugglega en jafntefli gæti dugað ef enginn hinna sem eru honum jafnir vinnur. Wang Hao teflir við David Howell (2694) í dag.
Lokaumferðin hefst kl. 11:30 í dag.
Efstu menn

Röðun 11. og síðustu umferðar

Sigurvegari mótsins (eða sá sem sem er efstur á eftir Carlsen og/Caruana) fær keppnisrétt á næsta áskorendamóti sem fram fer í Rússlandi í vor. Mótið er hrikalega sterkt. Af 154 keppendum eru 132 stórmeistarar.
















