EM í netskák hefur verið í fullum gangi undanfarið. Heilt yfir hefur framkvæmdin gengið vel en því miður hefur netsvindl verið töluvert. ECU og Chess.com eiga hins vegar hrós fyrir að hafa tekið hart á því og öllum sem ekki fara eftir reglum hefur verið vísað úr keppni. Viðkomandi tefla undir raunverulegu nafni og því er vitað um hverja ræðir. Stríðið við netsvindl heldur áfram.
D-flokki (2001-2300) lauk í gær. Enginn Íslendingur komst í úrslitakeppnina en Róbert Lagerman, Þorsteinn Þorsteinsson, Lenka Ptácníková og Jóhann H. Ragnarsson hlutu 3 vinninga af 7 mögulegum í undankeppninni.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1947) komst í úrslitakeppnina í c-flokki (1701-2000) og endaði þar með 3,5 vinninga af 8 mögulegum.
Í e-flokki (2301) eru tvær undankeppnir. Þeir 12 sem ná bestum árangri samtals komast í úrslitakeppnina. Þar eru sjö Íslendingar skráðir til leiks og þar af fjórir stórmeistarar. Skráningarfrestur rennur út kl. 16 í dag.
Skráning fer fram á vefsíðu ECU eða í gula kassanum hér á skak.is. Þátttökugjöld eru 5 evrur (um 800 kr.).
Mótið verður teflt í fimm mismunandi styrkleikaflokkum (miðað við atskákstig FIDE í apríl 2020). Hafi skákmenn ekki atskákstig verður notast við hrað- eða kappskákstig hafi þeir slíkt.
- a) 1000 – 1400 – 16. og 17. maí
- b) 1401 – 1700 – 19. og 20. maí
- c) 1701 – 2000 – 22. og 23. maí
- d) 2001 – 2300 – 25. og 26. maí
- e) 2300+ – 29.-31. maí
Eftir skráningu verða skákmennirnir meðlimir í ECU Online Central Club og viðeigandi styrkleikaflokki. Mæta þarf tímalega á Chess.com fyrir upphaf umferðar.
Teflt verður eftir svissneska kerfinu í öllum styrkleikaflokkum. Á degi 1 keppa allir sjö umferðir og a.m.k. 250 efstu komast í úrslitakeppni sem fram fer degi síðar. Þar eru tefldar átta umferðir. 100 efstu í úrslitakeppninni komast svo upp í næsta flokk.
Tímamörk í öllum flokkum eru 10+2.
Dagskráin
- 1000-1400 Undanrásir – laugardaginn, 16. maí, kl. 15
- 1000-1400 Úrslit – sunnudaginn, 17. maí kl. 15
- 1401-1700 Undanrásir – þriðjudaginn 19. maí kl. 16
- 1401-1700 Úrslit – miðvikudaginn, 20. maí kl. 16
- 1701-2000 Undanrásir – föstudaginn 22. maí kl. 16
- 1701-2000 Úrslit – laugardaginn, 23. maí kl. 15
- 2001-2300 Undanrásir – mánudaginn, 25. maí kl. 16
- 2001-2300 Úrslit – þriðjudaginn 26. maí kl. 16
- 2300+ Undanrásir – föstudaginn, 29. maí kl. 16
- 2300+ Undanrásir – laugardaginn, 30. maí kl. 15
- Úrslit 31. maí kl. 15 – sunnudaginn, 31. maí k. 15
Í flokki skákmanna með 2300 verða tefldar tvennar undanrásir. Í úrslitakeppnina komast þeir 12 sem flesta vinninga fá samtals ásamt fjórum boðsgestum.
Verðlaun