Björn stóð sig vel þrátt fyrir að þurfa að grilla fyrir fjölskylduna

Lið Reykjavík Puffins hóf leik í Norðurlandakeppni netliða í skák eða „Nordic Online Chess League“. Deild þessi er að mestu leiti til kominn þar sem að fækkun varð á liðum í hinni svokölluðu PRO Chess League en flest liðin hafa á einhverjum tímapunkti verið inni í þeirri deild. Hugmyndin var því að verða við verkefnaskorti og ákváðu forystumenn sænska liðsins Malmo Vikings að hrinda þessari deild í framkvæmd.

Eitt lið er frá öllum Norðurlandaþjóðunum og öll lið frekar sterk en þó Færeyingar líklegast veikastir fyrir þó þeir hafi stórmeistarann Helga Dam Ziska. Norska og sænska liðið er með mjög sterka meistara í þeim Hammer og Grandelius og því mjög sterk keppni hér á ferð.

Fyrsta verkefni Puffins var lið Færeyja. Skemmst er frá því að segja að sú viðureign varð aldrei til vandræða. Keppt er á 4 borðum, allir við alla. Í fyrstu tveimur umferðunum lögðu bæði Davíð Kjartansson og Dagur Ragnarsson besta skákmann Færeyinga að velli og staðan í hálfleik 7-1! Seinni hlutinn fór á nákvæmlega sama veg og því lokaúrslit hin sögulegu úrslit 14-2 sem fræg eru úr knattspyrnulandsleik Íslendinga og Dana um árið, 1967 ef pistlahöfundur man rétt.

Lið Puffins að þessu sinni skipuðu: Bragi Þorfinnsson – Björn Þorfinnsson – Dagur Ragnarsson og Davíð Kjartansson og stóðu sig allir með sóma. Aðrir liðsmenn sem mega taka þátt eru: Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson, Jón Viktor Gunnarrsson, Hannes  Stefánsson og Guðmundur Kjartansson.

Davíð Kjartansson hefur vafalítði fagnað með ís að loknu góðu dagsverki!

Næstu viðureignir verða erfiðari en prógram Reykjavík Puffins lítur svona út (viðureignir hefjast 17:00):

17. júní – gegn Helsinki Vihtas

22. júní – gegn Malmo Vikings

28. júní – Hraðskákmót – öll lið

2. júlí – gegn Copenhagen Bulls

6. júlí – gegn Oslo Offerspil

 

Frekari fréttir og úrslit má nálgast á síðu Malmo Vikings hér: http://malmovikings.se/nordic-league/

Viðureignir eru í beinni á Twitch hér: http://twitch.tv/malmovikings  og aldrei að vita nema framtíðar viðureignir verði í beinni útsendingu á „Íslenskir skákmenn“ á FB eða álíka vettvöngum. Hér er svo upptaka af viðureigninni:

https://www.twitch.tv/videos/646884230  ( sleppa 1 klst þar sem mistök voru gerð með tímamismun )

- Auglýsing -