Undanúrslit Skilling Open hófust í gær á Chess24. Magnús Carlsen vann fyrra einvígið gegn Ian Nepomniachtchi, þrátt fyrir ósannfærandi taflmennsku á köflum, og Wesley So á móti Hikaru Nakamura. Carlsen vann fyrstu skákina en hinum skákunum lauk með jafntefli. So vann einnig aðeins eina skák og þrjár fóru jafntefli.
Síðari einvígin fara fram í dag og þurfa Nepo og Naka á sigri að halda – til að komast í úrslitahraðskákeinvígi.
Nánar á Chess24.
Taflmennska í dag hefst kl. 17.
- Auglýsing -

















