Davíð vann undankeppni Friðriksmóts Landsbankans – Íslandsmótsins í hraðskák

1034
0
Davíð Kjartansson að tafli í Porto Carras. Mynd: Heimasíða mótsins.

Fjölmenn undankeppni Friðriksmóts Landsbankans – Íslandsmótsins í atskák fór fram í gær á Chess.com þar um 70 skákmenn tóku þátt. Keppt var um fjögur sæti í úrslitamótinu sem fram fer á laugardaginn. Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson vann sigur í undankeppninni. Auk hans tryggðu Jón Kristinn Þorgeirsson, Guðmundur Gíslason og Heimir Ásgeirsson keppnisrétt í úrslitunum.

Lokastaða mótsins

Keppt var aukaverðlaun Friðriksmótsins. Eftirtaldir unnu verðlaunin:

  • Efsti maður með 2001-2200 skákstig: Gunnar Freyr Rúnarsson
  • Efsti maður með 2000 stig og minna: Alexander Oliver Mai
  • Efsta konan: Lenka Ptácníková 
  • Efsti strákur 16 ára og yngri (2004 eða síðar): Gunnar Erik Guðmundsson
  • Efsta stúlka 16 ára og yngri (2004 eða síðar): Guðrún Fanney Briem
  • Efsti skákmaður 65 eða eldri (1955 eða fyrr): Áskell Örn Kárason

Eftirtaldir tefla í úrslitakeppninni sem fram fer á laugardaginn kl. 13

  1. SM Hjörvar Steinn Grétarsson (2662) -stig
  2. SM Héðinn Steingrímsson (2590) – stig
  3. SM Hannes Hlífar Stefánsson (2532) – stig
  4. SM Helgi Áss Grétarsson (2503) -stig
  5. SM Jóhann Hjartarson (2502) -stig
  6. AM Arnar Gunnarsson (2425) – stig
  7. SM Þröstur Þórhallsson (2419) – stig
  8. FM Vignir Vatnar Stefánsson (2404) – stig
  9. AM Jón Viktor Gunnarsson (2402) – stig
  10. AM Björn Þorfinnsson (2369) – stig
  11. AM Guðmundur Kjartansson (2329) – boð
  12. FM Jón Kristinn Þorgeirsson (2314) – undankeppni
  13. SM Bragi Þorfinnsson (2306) – boð
  14. AM Davíð Kjartansson (2292) – undankeppni
  15. FM Guðmundur Gíslason (2278) – undankeppni
  16. Heimir Áseirsson (2204) – undankeppni

Gunnar Freyr Rúnarsson (2102) er varamaður komi til forfalla en hann endaði í fimmta sæti í undankeppninni.

Nánar verður sagt frá úrslitakeppninni á morgun.

- Auglýsing -