Fimm íslenskir skákmenn taka þátt í undankeppni EM í hraðskák sem fram fer á Tornelo-netþjóninum í kvöld. Það eru stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2536), Jóhann Hjartarson (2525), Helgi Áss Grétarsson (2440) og Bragi Þorfinnsson (2439) og alþjóðlegi meistarinn Arnar E. Gunnarsson (2420).

Mótið hefst  kl. 17 með undankeppni þar sem tefldar eru 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Efstu 16 keppendur ávinna sér rétt til að tefla í útsláttarkeppni sem fram fer á laugar- og sunnudag.

- Auglýsing -