Fyrri viðureign átta manna úrslita Airthings Masters fór fram í gær. Magnús Carlsen varð að sætta sig við 2-2 jafntefli hjá gegn Daniil Dubov. Einnig varð jafntefli hjá Nepo og Radjabov. Þetta var hins vegar ekki dagur Bandaríkjamannana því Nakamura laut í skjá gegn Aronian og Wesley So gegn MVL. Átta manna úrslitum lýkur í dag.

Mótinu verður framhaldið kl. 14 í dag. Undanúrslit hefjast á morgun, gamlársdag.

Teflld eru tvö fjögurra skáka atskákeinvígi (15-10). Verði jafntefli verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma.

Sjá nánar á Chess24.

- Auglýsing -