Teimor Radjabov (2758) vann fyrra einvígið á móti Levon Aronian (2778) í úrslitum Airthings Masters sem hófst í gær. Fyrstu þremur skákunum lauk með jafntefli en Armenanum voru mislagðar hendur í fjórðu skákinni þegar hann hafnaði þrátefli og tapaði að lokum. Aronian þarf því nauðsynlega á sigri að halda í síðari einvíginu til að komast í framlengingu með styttri umhugsunartíma.
Mikið gekk á í einvígi Daniil Dubov (2770) og MVL (2860) í baráttunni um bronsið. Rússinn vann tvær fyrstu skákirnar en Frakkinn þær tvær næstu. Sigur í seinna einvíginu í dag tryggir því þriðja sætið. Verði jafntefli verður teflt til þrautar með styttri umhugunartíma.

Teflld eru tvö fjögurra skáka atskákeinvígi (15-10). Verði jafntefli verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma.
Sjá nánar á Chess24.
















