Vignir Vatnar Stefánsson (2314) og Guðmundur Kjartansson (2488) eru efstir og jafnir fyrir síðustu Skákþings Reykjavíkur sem fram fer á morgun. Þeir mætast í lokaumferðinni. Hjörvar Steinn Grétarsson (2576) er þriðji hálfum vinningi á eftir þeim félögum.
Helstu úrslit 8. umferðar
Guðmundur vann Pétur Pálma Harðarson (2086) og Vignir lagði félaga sinn Arnar Milutin Heiðarsson (1911) að velli. Hjörvar hafði betur gegn Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur (1935).

Röð efstu manna
Vignir og Guðmundur eru efstir eins og áður hefur komið fram. Þeir hafa 7 vinninga í 8 skákum. Hjörvar er í 3. sæti hálfum vinningi á eftir. Sex keppendur hafa 5½ vinning.
Helstu viðureignir lokaumferðarinnar
Guðmundur og Vignir mætast í lokaumferðinni. Sigurvegarinn vinnur mótið. Endi skákin með jafntefli eru þeir öruggir um skipt efsta sætið. Hjörvar Steinn mætir Davíð Kjartanssyni (2326) og getur náð þeim vinningum verði jafntefli niðurstaðan.




















