Andri Freyr. Mynd: Heimasíða SA

Þriðja umferð Skákþings Akureyrar var tefld í dag, 7. febrúar. Úrslit urðu sem hér segir:

A-flokkur:

  • Karl-Rúnar            0-1
  • Andri-Sigurður        1-0
  • Eymundur-Stefán       0-1
  • Gunnlaugur-Hjörleifur  0-1

Forystusauðirnir Andri og Rúnar unnu báðir örugga sigra og hafa báðir unnið allar sínar skákir. Varla við öðru að búast en baráttan um meistaratitilinn standi fyrst og fremst milli þeirra. Rúnar vann mótið 2019 og Andri í fyrra.  Næstur þeim að vinningum er Stefán, sem hefur tvo.

Fjórða umferð verður tefld fimmtudaginn 11. febrúar og hefst kl. 18. Þá verður Skákfélagið orðið 102 ára.

Chess-Results.

B-flokkur:

  • Gunnar-Markús        0-1
  • Emil-Sigþór          0-1
  • Jökull Máni-Mikael   0-1
  • Alexía-Brimir        0-1
  • Tobias-Jóhann        1-0 (w.o.)

Markús og Tobias hafa báðir fullt hús eftir þrjár umferðir, en Sigþór, Emil og Mikael hafa tvo vinninga.

Fjórða og fimmta umferð í B-flokki verða tefldar n.k. þriðjudag og hefst taflið kl. 15.

Chess-Results.

Af heimasíðu SA.

- Auglýsing -