Taflfélag Reykjavíkur mun halda nokkur skákmót yfir sumarmánuðina í félagsheimilinu Faxafeni 12, en þó er dagskráin ekki jafn stíf og yfir veturinn. Til að mynda verða þriðjudagsmótin hálfsmánaðarleg en ekki vikuleg í júní til ágúst. Einhver mót geta þó bæst við, til dæmis útimót.
Dagskráin:
25. maí, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
31. maí, mánudagur: Meistaramót Truxva haldið klukkan 19:30. 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.
1. júní, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
3. júní, fimmtudagur: Æfingarkappskák haldin klukkan 19:30. Ein óreiknuð kappskák, skráningarform sett upp fljótlega.
11.-13. júní, föstudagur til sunnudags: Þriðja Brim-mótið, atskák og kappskák. Auglýst betur fljótlega.
15. júní, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
29. júní, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
1. júlí, fimmtudagur: Æfingarkappskák haldin klukkan 19:30. Ein óreiknuð kappskák.
13. júlí, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
27. júlí, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
5. ágúst, fimmtudagur: Æfingarkappskák haldin klukkan 19:30. Ein óreiknuð kappskák.
10. ágúst, þriðjudagur: Þriðjudagsmót haldið klukkan 19:30. 4 umferðir með tímmörkunum 15+5.
Eftir það verða þriðjudagsmótin haldin vikulega.
Einnig verða Árbæjarsafnsmótið og Borgarskákmótið haldin í ágúst, og verða þau auglýst betur þegar nær dregur.

















