Sigurhreyfir Mátar árið 2010. Allir þessir eru komnir "heim" ásamt Arngrími og Tómasi.

Mátarnir Arngrímur Þór Gunnhallsson, Pálmi Ragnar Pétursson og Tómas Hermannsson hafa gengið í Skákfélag Akureyrar úr Skákfélaginu Hugin.

Árið 2008 stofnuðu nokkrir félagar úr Skákfélagi Akureyrar, Taflfélagið Máta. Mátar skráðu sig til keppni í fjórðu deild á Íslandsmóti taflfélaga þá um haustið, þar sem þeir áttu góðu gengi að fagna. Þeim tókst að vinna sig upp um deild á hverju ári, yfirleitt með nokkrum yfirburðum. Þegar að efstu deild kom, mynduðu þeir bræðralag með Skákfélaginu Goðanum og til varð skákfélagið Goðinn Mátar. Sá félagsskapur varð svo að GM-Mátum 2013, þegar Taflfélagið Hellir bættist í hópinn. GM-Mátar varð svo að Skákfélaginu Hugin árið 2014 en Huginn hefur verið í fararbroddi í íslensku skáklífi um árabil og meðal annars orðið Íslandsmeistari oft sinnis.

Félagsskapur Máta og föruneyti þeirra ákvað að breyta um takt við sameiningarnar. Þá gengu all nokkrir þeirra aftur í Skákfélag Akureyrar og Taflfélagið Mátar varð að Menningarfélaginu Mátum. Á vegum Menningarfélags Máta komu út fjögur ársrit Tímaritsins Skákar auk þess sem félagarnir lásu próförk að stórverki Helga Ólafssonar um Sögu Reykjavíkurmótsins.

Með þessum gjörningi lýkur áralangri ævintýraför um fjölbreyttar og skemmtilegar skáklendur. Mátar hafa nú allir gengið í uppeldisfélagið, Skákfélag Akureyrar. Þeir eru allir komnir aftur heim.

- Auglýsing -