
Fyrsta einvígisskák Vignis Vatnars Stefánssonar (2499) og Tiger Hillarp Persson (2521) fór fram við skemmtilegar aðstæður í Kjarvalsstofu. Tiger hafði hvítt og hafði frumkvæðið mest alla skákina án þess að skipa sér hættuleg færi því ungmennið varðist óaðfinnalega í hróksendatafli. Þráteflt eftir 48 leiki.
Önnur skák einvígisins hefst kl. 13:30. Þá hefur Vignir hvítt.
Skáksamband Íslands stendur fyrir einvíginu í góðri samvinnu við Skákskóla Íslands, Skákdeild Breiðabliks, Skákfélag Akureyrar og Vinnustofu Kjarvals.
- Auglýsing -


















