Íslenska liðið var með pálmann í höndunum í viðureign okkar manna við Svía í dag en misstu viðureignina niður í jafntefli. Slóvenska kvennasveitin reyndist slóttugri í dag og unnu stórt gegn okkar stúlkum.

Hjörvar fékk erfitt verkefni á fyrsta borði, svart gegn Nils Grandelius. Hjörvar leysti verkefni dagsins með prýði og var aldrei í nægjanlegum vanræðum til að eiga á hættu að tapa. Þráskák varð niðurstaðan í lokin.
Hannes tefldi eins og herforingi í sinni skák og setti tóninn nokkuð snemma. Góður sigur hans og jafntefli Hjörvars settu okkur í sannkallaða kjörstöðu!
Á þriðja borði lék Linus Johansson skelfilega af sér í 17. leik og Jóhann vann mann. Linus reyndi allt sem hann gat til að þyrla ryki í augu Jóhanns og eftir smá basl tókst honum það einhvern veginn. Jóhann lék nokkrum ónákvæmum leikjum og loks komst Linus inn í skákina og grísaði á sigur, þar með rann úr greipum okkar sigur í viðureigninni sem virtist nánast öruggur.
Guðmundur Kjartansson tefldi af öryggi með hvítu en fékk aldrei nóg til að pressa til vinnings. Í lokin vann Seo peð en með öll peð á sama væng var jafnteflið alltaf líklegustu úrslitin.

Báðar slóvensku sveitirnar reyndust of harðar fyrir íslensku stelpurnar. 0,5-3,5 tap aftur niðurstaðan gegn Slóveníu I eftir sömu niðurstöðu gegn Slóveníu II síðast.
Lenka átti bestu skák stelpnanna og var aldrei í taphættu. Vann peð í miðtaflinu og hvítur fékk bætur en ekki meira en það.
Hallgerður lenti í smá klípu snemma í miðtaflinu og líklega var 17.fxg4 misráðið en 17.f4 hefði haldið taflinu í jafnvægi. Í kjölfarið tefldi sú slóvenska mjög vel.
Jóhanna lenti í smá beyglu í kjölfarið á byrjuninni og reyndist staðan erfið. Jóhanna barðist þó eins og henni er lagið en á endanum hafði Lara betur.
Liss virtist missa frumkvæðið í miðtaflinu eftir að hafa haft fina stöðu. Smátt og smátt fjaraði undan og Jana Krivec tók vinninginn á reynslunni.
Kvennaliðið fær England á morgun, sveit sem við höfum lagt að velli. Englendingar eru að eiga slæmt mót og hjá þeim vantar Jóvönku Housku. Í opnum flokki fáum við lið Belga, lið sem við eigum að geta unnið ef allt er eðlilegt.
Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma.
Skákvarpið má finna hér og hefjast útsendingar 15:30-16:00

















