EM landsliða heldur áfram í dag eftir frídag með 6. umferð í opnum flokki og kvennaflokki. Viðureignir dagsins hjá okkar fólki eru eftirfarandi:

Við höfum oft átt skemmtilegar viðureignir gegn Svíum. Skemmst er að minnast 4-0 sigurs á EM 2015 í Reykjavík! Á ÓL höfðu Svíarnir þó okkur undir. Helgi Áss hvílir í dag.
Beinar útsendingar íslenska liðsins í opnum flokki

Stelpurnar reyna að ná fram hefndum fyrir tapið gegn Slóveníu 2 með því að taka Slóveníu 1 í bakaríð! Hrund hvílir í dag.
Beinar útsendingar kvennaliðs á Chess24
Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma
Skákvarpið verður á sínum stað og hefst ca. 15:30-1600
- Auglýsing -
















