Alþjóðlegi meistarainn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) náði í sinn annan áfanga að stórmeistaratitli á alþjóðlegu áfangamóti í Serbíu. Vigni vantar einn áfanga til að verða útnefndur stórmeistari. Hann er kominn með 2492 „lifandi“ skákstig svo einnig þarf að krækja sér í átta skákstig til viðbótar.
Vignir gerði örstutt jafntelfi við Indverjann B Vignesh (2370) í lokaumferðinni og hlaut 7 vinninga í umferðunum níu.
Frammistaða hans samsvaraði 2617 skákstigum og hækkar hann um 15 stig fyrir hana. Mótið kemur hins vegar ekki til útreiknings fyrr en 1. apríl nk. svo væntanlega birtist hann á stigalistanum 1. mars með 2477 skákstig.
Verkefnin hjá Vigni á næstunni eru fyrst og fremst innanlands. Íslandsmót skákfélaga fer fram 3.-6. mars, Kviku Reykjavíkurskákmótið 6.-12. apríl og landsliðsflokkur Skákþings Íslands á Selfossi 21. apríl – 1. maí.
Ingvar Þór Jóhannesson mun gera lokaumferðinni betri skil síðar í dag.
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results
















