Skákstjórinn Páll Sigurðsson skráði 94 þátttakendur til keppni á Sumarskákmót Fjölnis 2022. Frábær mæting en kannski ekki skrýtið þar sem ótrúlegur fjöldi góðra verðlauna og veitinga var í boði. Þarna naut Skákdeild Fjölnis stuðnings frá Hagkaup, Gullnesti, SAMbíóunum, Jóa útherja, Bókabúðinni Grafarvogi og ekki síst Rimaskóla sem hýsti hátíðina og bauð upp á gómsæta skúffuköku.

Auk Fjölniskrakka mættu um 40 áhugasamir og sterkir skákkrakkar úr öðrum skákfélögum.

Á meðan á skráningu stóð tefldi Helgi Áss Grétarsson stórmeistari fjöltefli við krakkana sem fyrstir voru til að fylla sætin, færri komust að en vildu. Vel lá á stórmeistaranum og hann lét það lítið á sig fá þó að krakkar væru yfir og allt um kring um hann.

Helgi Áss var gestur mótsins og lék fyrsta leikinn fyrir Heiðdísi Diljá sem skipar hina sterku stúlknasveit Rimaskóla í elsta flokki.

Mótið gekk ótrúlega vel fyrir sig en auk Palla voru það Helgi Árnason og Jóhann Arnar Finnsson sem stjórnuðu mótinu. Fjöldi foreldra fylgdist með og hjálpaði til við pörun og frágang í lokin.

Rótarýklúbbur Grafarvogs gaf verðlaunagripi mótsins sem voru í boði fyrir efstu skákmenn Fjölnis á mótinu. Á eftir völdu 37 stigahæstu keppendurnir sér þau eftrisóttu verðlaun sem í boði voru og undu glaðir við sitt. Í lokin var svo dregið í happadrætti, 10 vinningar frá Jóa útherja, fótboltatengdir vinningar. Nákvæmlega helmingur þátttakenda sóttu sér vinning á mótinu, gerist varla betra.

Valinn var afreksmaður ársins hjá Skákdeild Fjölnis, Eiríkur Emil Hákonarson Húsaskóla. Hrafndís Karen Óskarsdóttir í Rimaskóla var kjörin æfingameistari ársins. Rótarýbikarana hlutu Eiríkur Emil, Silja Rún Jónsdóttir og Tristan Fannar Jónsson.

Þegar kom að verðlauna eftir röð vinninga voru það „aðkomukeppendur“ nokkuð fjölmennir. Gunnar Erik Guðmundsson vann allar sínar skákir og hálfum vinningi minna hlaut Örvar Hólm Brynjarsson. Sex skákmenn hlutu 5 vinninga, þau Guðrún Fanney, Jon Louie, Eiríkur Emil, Sigurður Páll, Tristan Fannar og Oliver.

Þrátt fyrir langt mót og langa verðlaunahátíð voru allir þátttakendur sér og sínum til mikils sóma og eiga hrós skilið. Skákdeild Fjölnis þakkar þátttakendum, foreldrum, styrktaraðilum og öðrum gestum kærlega fyrir að gera Sumarskákmót Fjölnis að eins glæsilegri skákhátíð líkt og raunin varð.

Ljósmyndir: Þorsteinn Magnússon og Skákdeild Fjölnis

- Auglýsing -