Norski heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2864) vann Shakhriyar Mamedyarov (2770) í sjöttu umferð Norway Chess sem fram fór í gær. Þar með náði Magnús toppsætinu því öðrum skákum lauk með jafntefli. Vishy Anand (2751) er annar eftir að hafa lagt Anish Giri (2761) í bráðabana. Wesley So (2766) er þriðji en hann vann Aryan Tari (2654) í bráðabana.


Sjöunda umferð fer fram í dag. Carlsen teflir við landa sinn, Aryan Tari og Anand mætir Teimour Radjabov (2753).
Fyrirkomulagið er þannig að tefld er kappskák. Sigurvegarinn fær 3 stig. Geri keppendur jafntefli fá báðir 1 stig. Þá er tefldur bráðabani og fær sigurvegarinn auka hálft stig. Keppendalistinn er áhugaverður. Vegna áskorendamótsins í Madrid sem hefst 17. júní tefla áskorendurnir ekki á Norway Chess að Radjabov undanskildum.















