Einvígi aldarinnar á milli Boris Spassky og Bobby Fischer fór fram sumarið 1972 í Laugardalshöllinni. Einvígið er enn í dag talinn einn helsti skákviðburður sem farið hefur fram. Þá mætust austrið og vestrið. Boris Spassky fulltrúi Sovétríkjanna sem hafði haldið heimsmeistaratitlinum í áratugi og Bobby Fischer, fulltrúi hins frjálsa heims.
Einvígið var formlega sett 1. júlí 1972 í Þjóðleikhúsinu. Það gerði Guðmundur G. Þórarinsson, þáverandi forseti Skáksambands Íslands.
Á ýmsu gekk svo í framhaldinu, aðalega vegna erfiðra samskipta við áskorandann (Fischer) sem sífellt kom fram með nýjar og erfiðar kröfur. Fyrsta skák einvígisins var ekki tefld fyrr en 11. júlí 1972 eða 10 dögum eftir setningu þess. Fischer neitaði að mæta í aðra skákina og þriðja skákin var tefld í svokölluðu borðtennisherbergi.
Að lokum fór svo að Fischer vann einvígið 12½-8½. Síðasta skákin fór fram 31. ágúst.
Löngu síðar flutti Bobby Fischer til Íslands, gerðist íslenskur ríkisborgari og er jarðsettur í Laugardælakirkjugarði.
Í tilefni af 50 ára afmæli setningar einvígisins verður athöfn haldin á Reykjavík Natura (áður Loftleiðum), þann 1. júlí nk.
Þar mun Guðmundur G. Þórarinsson rifja upp setningaræðuna frá sléttum 50 árum áður.
Jafnframt verður sagt frá afmælishátíðinni sem fram fer í25.-30. október í Reykjavík. Þá verður heimsmeistaramótið í Fischer-slembiskák haldið. Sex skákmenn tefla um heimsmeistaratitilinn. Þar má fremstan nefna Magnús Carlsen, heimsmeistara í skák, bandaríska stórmeistarann Wesley So, núverandi heimsmeistara í Fischer-slembiskák. Fulltrúi Íslands á mótinu verður kynntur til leiks á morgun!
Undankeppni um hin þrjú sætin fer fram á netinu og verður fyrirkomulagið nánar kynnt síðar.
Athöfnin á Reykjavík Natura hefst kl. 14. Allir velkomnir.















