Íslensku goðsagninrar unnu sigur á liði Ungverjalands í níundu og síðustu umferð HM öldungasveita (50+) sem fram fór í gær í Acuqi Terma á Ítalíu.
Jóhann Hjartarson (2472) vann en Margeir Pétursson (2450), Jón L. Árnason (2412) og Þröstur Þórhallsson (2409) gerðu jafntefli.

Íslenska liðið endaði í fjórða sæti með 12 stig og 21½ vinning. Sveitin tapaði fyrir sveitunum fyrir ofan sig en vann allar viðureignir. Englendignar urðu heimsmeistarar í bæði 50+ og 65+
Jón L. Árnason stóð sig best íslensku keppendanna en hann hlaut 6½ vinning í 8 skákum. Var taplaus. Margeir Pétursson hlaut 5½ vinning og var einnig taplaus en leyfði fleiri jafntefli en Jón.
23 sveitir tóku þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13 – aðeins tvær efstu viðureignir).
- Auglýsing -
















