Hilmir að tafli. Mynd: Heimasíða DSU.

Hilmir Freyr Heimisson er efstur á alþjóðlega mótinu í Árósum að loknum fimm umferðum. Lenka Ptácníková er í öðru sæti á alþjóðlegu móti í Prag.

Slovakia Open Piestany 

Fimmta umferð fór fram í gær.

Alexandr Domalchuk-Jonasson (2246) vann í gær og hefur 3 vinninga, Helgi Áss Grétarsson (2452) gerði jafntefli en Vignir Vatnar Stefánsson (2461) tapaði sinni skák fyrir slóvakíska alþjóðlega meistaranum Martin Neugebauer (2528). Allir hafa þeir 3 vinninga.

Sjötta umferð fer fram í dag. Þá mætast Aleksandr og Helgi Áss. Umferðin hefst núna kl. 8.

64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fer fram 11.-18. júlí.

Zlata Praha Open

Sjötta umferð fór fram í gær.

Jósef Omarsson (1606) vann í gær en Lenka Ptácníková (2066) og Adam Omarsson (1794) gerðu jafntefli.

Lenka hefur 4½ vinning og er í 2. sæti á mótinu. Adam og Jósef hafa 3½ vinning

Sjöunda umferð fer fram í dag og hefst kl. 14:30.

34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu. Mótið fer fram 9.-17. júlí.

Skolernes 50 ára afmælismót

Fimmta umferð fór fram í gær.

Hilmir Freyr Heimisson (2281) vann danska FIDE-meistarann Jens Albert Ramsdal (2279) og er efstur á mótinu með 4½ vinning.

Björn Hólm Birkisson (2095) gerði jafntefli og hefur 2 vinninga.

Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast kl. 8 og 14.

22 keppendur taka þátt og þar af 1 stórmeistari og 2 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 11.-17. júlí.

- Auglýsing -