Íslendingar eru í toppbaráttunni á þremur alþjóðlegum mótum. Vignir Vatnar er í 5.-11. sæti í Slóvakíu, Lenka er í 2.-3. sæti í Prag og Hilmir Freyr er í 1.-2. sæti í Árósum.
Slovakia Open Piestany
Þriðja og fjórða umferð voru tefldar í gær.
Vignir Vatnar Stefánsson (2461) vann báðar sínar skákir og hefur 3 vinninga. Helgi Áss Grétarsson (2452) hlaut hálfan vinning og hefur 2½ vinning. Alexandr Domalchuk-Jonasson hlaut 1½ vinning í gær og hefur 2 vinninga.
Fimmta umferð fer fram í dag. Vignir mætir þá slóvakíska alþjóðlega meistaranum Martin Neugebauer (2528). Umferðin hófst kl. 8.
64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fer fram 11.-18. júlí.
Zlata Praha Open
Lenka Ptácníková (2066) og synir hennar, Adam (1794) og Jósef Omarssynir (1606) unnu öll í gær í fimmtu umferð sem fram fór í gær.
Lenka hefur 4 vinninga og er í 2.-3. sæti, Adam hefur 3½ vinning og Jósef hefur 2½ vinning.
Sjötta umferð fer fram í dag og hefst kl. 14:30.
34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu. Mótið fer fram 9.-17. júlí.
Skolernes 50 ára afmælismót
Hilmir Freyr Heimisson (2281) og Björn Hólm Birkisson (2095) taka þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku. Þriðja og fjórða umferð voru tefldar í gær.
Hilmir Freyr hlaut 1½ vinning í skákum gærdagsins gegn tveimur FIDE-meisturum. Björn Hólm tapaði báðum sínum skákum.
Hilmir Freyr hefur 3½ vinning og er í 1.-2. sæti. Björn Hólm hefur 1½ vinning.
Fimmta umferð fer fram í dag og hefst kl. 12.
22 keppendur taka þátt og þar af 1 stórmeistari og 2 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 11.-17. júlí.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Engar beinar útsendingar















