Hilmir Freyr að tafli í Árrósum. Mynd: Mads Boe

Átta íslenskir skákmenn sitja þessa dagana að tafli erlendis.. Þrír íslenskir skákmenn sitja að tafli í Slóvakíu og jafnmargir í Tékklandi. Auk þess tveir í Danmörku. Helgi Áss Grétarsson hefur fullt hús eftir tvær umferðir í Slóvakíu og Hilmir Freyr hefur fullt hús í Árrósum. Björn Hólm Birkisson gerði jafntefli við stórmeistara í gær.

Slovakia Open Piestany 

Helgi Áss Grétarsson (2472) vann í gær og hefur fullt hús eftir tvær umferðir. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244) gerði jafntefli en  Vignir Vatnar Stefánsson (2461) tapaði.

Helgi hefur fullt hús, Vignir hefur 1 vinning og Aleksandr hefur hálfan vinning.

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri kl. 8 og sú síðari kl. 14.

64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fer fram 11.-18. júlí.

Zlata Praha Open

Lenka Ptácníková (2066) og synir hennar, Adam (1794) og Jósef Omarssynir (1606) taka þátt í alþjóðlegu móti í Prag.

Lenka og Adam unnu í 4. umferð en Jósef tapaði.

Lenka hefur 3 vinninga, Adam hefur 2½ vinning en Jósef hefur 1½ vinning.

34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu. Mótið fer fram 9.-17. júlí.

Skolernes 50 ára afmælismót

Hilmir Freyr Heimisson (2281) og Björn Hólm Birkisson (2095) taka þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku.

Hilmir Freyr hefur fullt hús eftir tvær umferðir. Björn Hólm hefur 1½ vinning. Björn gerði jafntefli við pólska stórmeistarann Miroslaw Grabarczyk (2374) í gær.

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hefst kl. 8 og sú síðari kl. 14.

22 keppendur taka þátt og þar af 1 stórmeistari og 2 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 11.-17. júlí.

- Auglýsing -