Kötlusetur í Vík í Mýrdal fagnaði 50 ára afmæli “Einvígis aldarinnar” þann 9. júlí síðastliðinn með opnun skáksýningar tileinkaða einvíginu og hraðskákmóti í Skaftellingsbúð. Höfundur sýningarinnar er katalónski blaðamaðurinn Albert Cañagueral, en Albert var í Reykjavík fyrir 50 árum og fylgdist með einvíginu fyrir spænska fjölmiðla. Á sýningunni rifjar hann upp einvígið og hápunkta þess en ekki síst upplifunina af því að vera viðstaddur þennan merka viðburð.

Mikil hátíðarstemning var við opnun sýningarinnar. Guðmundur G. Þórarinsson ávarpaði gesti og gaf skemmtilega innsýn í það hvernig það kom til að Ísland var valið sem einvígisstaðurinn. Gríska þjóðlagadúóið Kanarya tók nokkur lög og afhjúpuð var brjóstmynd af Bobby Fisher eftir ungverska listamanninn Zoltán Barát. Sýningin er opin í Kötlusetri út sumarið alla daga frá 10 til 17.

Í tilefni opnunarinnar var efnt til fyrsta hraðskákmóts Kötluseturs og var það gert í mjög góðri samvinnu við Skákskóla Íslands. Mótið var haldið í Skaftfellingsskemmu þar sem heillaskipið Skaftfellingur bauð þátttakendur velkomna og hélt Helgi Ólafsson stórmeistari með miklum myndarskap utan um mótið. Alls tefldu 24 þáttakendur sem Helgi skipti í 3 riðla. Tveir efstu í hverjum riðli fóru í úrslit og eftir bráðabana við Gergely Nemeth stóð Davíð Kjartansson uppi sem fyrsti Kötlumeistarinn í hraðskák! Einnig var keppt í barna og unglingaflokki og voru úrslitin eftirfarandi:

Fullorðinsflokkur:

  1. sæti og fyrsti Kötlumeistarinn í hraðskák: Davíð Kjartansson
  2. sæti: Gergely Nemeth
  3. sæti: Jóhann H. Ragnarsson

Unglingar:

  1. Sæþór Ingi Sæmundsson
  2. Stephanie Ósk Ingvarsdóttir
  3. Sigurgeir Máni Jóhannsson
  4. Alexander Dagur Sigurðsson

Barnaflokkur:

  1. Mikael Ingvarsson
  2. Þorkell Skorri Jóhannsson
  3. Gréta Einarsdóttir
  4. Daníel Ágúst Haraldsson, sem einnig var yngsti keppandinn fæddur 2015.

Sæþór Ingi Sæmundsson vann unglingaflokk og var einnig meðal 6 efstu á mótinu. Mikill áhugi var í Mýrdalshreppi fyrir mótinu og studdu fyrirtæki á svæðinu vel við það með glæsilegum vinningum. Mótshaldarar eru mjög þakklátir fyrir góða þátttöku, stuðning við mótið og frábæra stemningu og vonast til að mótið verið að árlegum viðburði!

- Auglýsing -