Þrír íslenskir skákmenn sitja að tafli í Slóvakíu og jafnmargir í Tékklandi. Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson hófu taflmennskuna í Slóvakíku með sigrum.
Slovakia Open Piestany
Helgi Áss Grétarsson (2472) og Vignir Vatnar Stefánsson (2461) unnu í fyrstu umferð sem fram fór í gær. Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2244) tapaði í fyrstu umferð fyrir þýska stórmeistaranum Alexander Donschenko (2640).
Önnur umferð hófst núna kl. 8
64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar.
Zlata Praha Open
Lenka Ptácníková (2066) og synir hennar, Adam (1794) og Jósef Omarssynir (1606) taka þátt í alþjóðlegu móti í Prag.
Lenka tapaði í 3. umferð sem fram fór í gær en strákarnir gerðu innbyrðis jafntefli. Lenka hefur 2 vinninga en bræðurnir hafa 1½ vinning.
34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu.














