Sveit Skákfélags Akureyrar mun tefla á EM taflfélaga sem fram fer í Austurríki í október.

Sveit félagsins skipa:

  • Jón Kristinn Þorgeirsson
  • Rúnar Sigurpálsson
  • Stefán Bergsson
  • Áskell Örn Kárason
  • Andri Freyr Björgvinsson
  • Haraldur Haraldsson

Skákfélagsmenn fljúga til Munchen með fyrst vél Icelandair þann 2. október og tilbaka 10. október klukkan 14:05. Stefnt er á dvöl á Sport and Spa Hotel Strass.

Undirbúningur er þegar hafinn og felst meðal annars í taflmennsku á meginlandi Evrópu og fjallgöngum. Þá munu sveitarmeðlimir tefla á afmælismóti Ólafs Kristjánssonar í Hofi á Akureyri fyrstu helgina í september.

 

- Auglýsing -